
Ásmundur Sveinsson - Víkingur (1928)
Í verkum Ásmundar má oftast finna skýra vísun í náttúru, sögu eða bókmenntir. Víkingur sækir innblástur og efnivið í íslenska sagnahefð. Verkið gerði Ásmundur í París á svipuðum tíma og hann stundaði nám í Académie Julien. Fljótlega eftir komuna til Parísar tók að bera á aukinni hreyfingu í verkum Ásmundar.