
Ásmundur Sveinsson - Járnsmiðurinn (1936)
Verkið gerði Ásmundur í Kaupmannahöfn og sýnir skúlptúrinn járnsmið sem styður sig fram á steðjann. Ásmundur stækkaði Járnsmiðinn í steinsteypu árið 1955 og stendur hann við Snorrabraut í Reykjavík. Verkið sýnir styrk hinna vinnandi stétta.