Hvíld, 1936-37
Hvíld skapaði Ásmundur í Kaupmannahöfn þar sem hann leigði sér vinnustofu og hvíldi sig frá byggingarvinnunni á Freyjugötu 41 í Reykjavík – þar sem hann hafði byggt sér hús og vinnustofu. Veturinn sem Ásmundur dvaldi í Danmörku vann hann sextán verk sem öll sýna vinnandi fólk og hafa mörg þeirra orðið til þess að halda nafni hans á lofti.