
Ásmundur Sveinsson - Hamarinn (1933)
Hamarinn gerði Ásmundur í Reykjavík stuttu eftir að hann vann lágmyndirnar á veggi Austurbæjarskóla. Á þessum tíma gerði Ásmundur fjölda verka sem sýndu vinnandi fólk. Verkið er þykk og massíf heild sem hvergi loftar um - maðurinn og hamarinn eru sem eitt.