Fara beint í efni

Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd

Forsíðumynd Smáborg háborg eftir Halldór Pétursson

Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd

Kjarvalsstaðir

-

Hver er myndin af Reykjavík, fyrr og nú?

Hvaða augum líta listamenn borgina og hvaða einkenni hennar eru dregin fram í myndmáli ólíkra kynslóða?

Við kynnum ný samtímalistaverk, drögum fram áhugaverð listaverk úr safneign og fáum að láni forvitnilega muni frá öðrum söfnum og stofnunum. Þar sjáum við borgina þróast frá kaupstað og sjávarþorpi til fjölþjóðlegrar menningar- og ferðamannaborgar í lifandi, brotakenndri og síbreytilegri mynd. Sýningin kallar fram spurningar um ímynd, borgarskipulag, samfélagsgerð og menningarlega sjálfsmynd. Hinu áþreifanlega er stillt upp samhliða hinu ljóðræna, hinu sögulega og hinu listræna, hinu persónulega og hinu sammannlega. Hvernig hjálpar list okkur að sjá hið kunnuglega í nýju ljósi?

Meðal listamanna sem eiga verk á sýningunni eru: Spessi, Nína Tryggvadóttir, Jón Engilberts, Louisa Matthíasdóttir, Ólafur Elíasson, Anna María Bogadóttir, Hlynur Helgason, Bára Kristinsdóttir og Skarphéðinn Bergþóruson.

Í tilefni 240 ára afmælis Reykjavíkur árið 2026 er ásýnd borgarinnar í gegnum tíðina tekin til skoðunar á sumarsýningu á Kjarvalsstöðum. Samhliða sýningunni verður í boði ríkuleg dagskrá afþreyingar, viðburða og fræðslu. Verkefnið er unnið af sýningarteymi Listasafns Reykjavíkur sem samanstendur Markúsi Þór Andréssyni, Sigurði Trausta Traustasyni og Sunnu Ástþórsdóttur.

Myndir af sýningu

Myndir frá opnun