Ásmundur Sveinsson

Ásmundur Sveinsson (1893–1982) var einn af frumkvöðlum íslenskrar höggmyndalistar. Fyrr á árum mættu verk hans iðulega andstöðu og hörðum dómum en með tímanum hafa þau fest sig í sessi sem ein af birtingarmyndum íslenskrar sagnahefðar, samfélags og náttúru á 20. öld.

Ásmundur hélt alla tíð tryggð við þá afstöðu að listin ætti erindi til fólksins og ætti heima á meðal þess.

Hann var kallaður alþýðuskáldið í myndlist og án efa á sú hugsjón rætur að rekja til lífsafstöðu hans ekki síður en höggmyndahefðarinnar. Mörg af verkum hans voru hugsuð sem hluti af opinberu rými, órofa hluti af umhverfi sínu eða útfærð sem hönnun og nytjahlutir.

Ásmundur ánafnaði Reykjavíkurborg verk sín ásamt heimili sínu eftir sinn dag. Ásmundarsafn við Sigtún er helgað verkum Ásmundar og var formlega opnað vorið 1983. Verkin í safninu spanna alla starfsævi listamannsins og sýna þau hvernig listferill hans þróast og breytist á langri ævi. Einnig má finna fjölmargar höggmyndir eftir Ásmund í opinberu rými í Reykjavík.

Í Ásmundarsafni eru haldnar sýningar á verkum listamannsins svo og verkum annarra listamanna sem hafa gjarnan vísun í list Ásmundar. 

.

Sýningar

A posteriori: Hús, höggmynd

Skoða

Sýning myndverka í eigu Listasafns Reykjavíkurborgar

Skoða

Ásmundarsafn - Konan í list Ásmundar Sveinssonar

Skoða

Ásmundarsafn - Ásmundur Sveinsson

Skoða

Ásmundarsafn - Vinnan í list Ásmundar Sveinssonar

Skoða

Reykjavík og list Ásmundar Sveinssonar

Skoða

September - Septem

Skoða

Íslensk Höggmyndalist 1900-1950

Skoða

Ásmundarsafn - Abstraktlist Ásmundar Sveinssonar

Skoða

Ég hef aldrei séð fígúratíft rafmagn

Skoða