Verslun

Strokkur

 

Strokkur

Strokkur er ílát innblásið af verkinu Kona að strokka sem Ásmundur Sveinsson myndhöggvari vann í Reykjavík árið 1934. Strokkur gefur notandanum tækifæri til að máta sig við verkið og setja sig í stellingar styttunnar sem af mikilli ró og yfirvegun strokkar smjör. Verkið var óður til kvenna fyrr og síðar.

  • Hönnuður: Hanna Dís Whitehead
  • Stærð:Ø 17-20, H 10-30 cm
  • Þyngd: ca. 512-670 g
  • Efni: Steinleir og jarðleir með glerungi
  • Mælt er með að handþvo vöruna
  • Handgert af hönnuðinum á Íslandi (hver gripur er einstakur)
  • Brothætt

Ásmundur Sveinsson (1893-1982) var einn af frumkvöðlum íslenskrar höggmyndalistar. Listaverk hans endurspegla íslenska sagnahefð, samfélag og náttúru. Mörg verka hans eru hluti af almannarými og þekkt í borgarlandinu. Ásmundur var alla tíð þeirrar skoðunar að listin ætti að vera hluti af daglegu lífi fólks.

Þér gæti einnig líkað við