Íslensk nátt­úrusýn

Íslensk náttúrusýn

Íslensk náttúrusýn

Ásmundarsafn

-

Íslensk náttúra hefur ætíð sótt á íslenska listamenn, og á 20. öld hefur náttúran verið eitt af helstu viðfangsefnunum í íslenskri myndlist. Íslensk náttúra er uppspretta sérstakra forma, ljóss og lita, og ekki síst voldugur aflvaki tilfinninga, en hver listamaður hefur nálgast náttúruna á sinn veg; sérhver þeirra hefur valið sína eigin leið til tjáningar, túlkunar, samræðu og hyllingar.

Á þessari sýningu er brugðið ljósi á glímu íslenskra myndlistarmanna við náttúru Íslands.

Hér er fjöldi listaverka, unnin á ólíkum listrænum forsendum, en uppruni þeirra allra er samur: hið óhjákvæmilega stefnumót íslensks listamanns við land sitt..

Myndir af sýningu