Stormur vetrarsápa
Stormur vetrarsápa er handgerð og framleidd í litlu upplagi í einu. Sápan inniheldur náttúrulegar olíur sem næra og mýkja húðina
Hverri sápu er hellt í sérhannað mót og handpakkað þegar hún er tilbúin. Sápan inniheldur ilm sem unninn er út frá árstíðabundinni upplifun. Sápan inniheldur aðeins náttúruleg litarefni, þ.e. steinefnaríka sjávarkalkþörunga.
Stormur táknar veturinn og minnir á kröftugar veðrabreytingar þess árstíma. Ilmurinn samanstendur af tóbakslaufi, hlýjum viðartónum, blómum og djúpum moskustónum.