Stafróf Ásmundar, eftir Þorleif Gunnar Gíslason
© Þorleifur Gunnar Gíslason
Þessi leturgerð er innblásin af verkum A.M. Cassandre og Ásmundar Sveinssonar. Þorleifur sér ákveðin líkindi á milli verka þeirra, má þar helst nefna leturgerð Cassandre, Le Bifur, sem er einkennandi fyrir togstreitu, mjó strik og þykkir fletir togast á og skapa heild. Þess konar togstreitu má sjá víða í abstrakt verkum Ásmundar.