Undraland: Eftirstöðvar

Undraland: Eftirstöðvar
Ásmundarsafn
-
Á sýningunni Eftirstöðvar í Ásmundarsafni eru sýnd verk sex listamanna sem fengu úthlutað vinnustofu á safninu en í þessu sérstaka verkefni Undraland- verk í vinnslu sem stóð yfir veturinn 2025-2026 fengu sex listamenn tækifæri til að vinna í nánum tengslum við rými safnsins, anda Ásmundar Sveinssonar og daglega starfsemi þess.
Á sýningunni má sjá fjölbreytt verk sem bera merki tilrauna og þeirrar sköpunar sem átti sér stað á meðan listamennirnir unnu í safninu. Verkefnið var hugsað sem lifandi samtal milli listamanns, rýmis og áhorfanda — og eftirstöðvarnar sem nú birtast eru bæði spor, minningar og nýjar túlkanir á því sem varð til.
Á sýningunni eru verk eftir: Unnar Örn, Ástu Fanney Sigurðardóttur, Amöndu Riffo, Halldór Ásgeirsson, Söru Riel og Finn Arnar Arnarsson. Eftirstöðvar dregur fram fjölbreytt sjónarhorn og vinnuaðferðir, en saman mynda verkin líflega heild sem speglar tíma listamannanna í safninu og opnar fyrir nýjar leiðir til að skynja Ásmundarsafn og umhverfi þess.
Frá vinnustofudvölum

Ítarefni
Sýningarstjórar
Markús Þór Andrésson og Sunna Ástþórsdóttir
Listamenn