Hafnarhús
-
Sýning á úrvali þeirra listaverka, sem Listasafn Reykjavíkur hefur fest kaup á eða fengið að gjöf frá 2002. Þetta er fjölbreytt safn verka eftir fjölmarga listamenn íslenska og erlenda.
Alls komu 390 ný verk í safnið, ýmist innkaup eða gjafir eftir 83 listamenn. Upplýsingar um öll þessi verk og listamennina verða aðgengileg gestum safnsins í sérstökum gagnagrunni á tölvum við inngang sýningarsalanna.
Þar má einnig fá upplýsingar um núgildandi samþykktir Reykjavíkurborgar um safnið og þá um leið innkaup ásamt nýjum samþykktum sem ganga í gildi um næstu áramót..
Sýningarstjóri/-ar
Ágústa Kristófersdóttir
Listamenn