Þessi bók inniheldur glæsilegar ljósmyndir eftir Sigurð Guðmundsson sem sýndar voru á Listasafni Reykjavíkur. Með þessum myndum snýr Sigurður sér aftur að ljósmyndinni sem miðli en það hefur hann ekki gert frá 1980. Falleg bók sem birtir einstaka sýn Sigurðar á umheiminn.