Hafnarhús
08.03.2025-08.05.2025
Salir B, C, D
Sýningin List er okkar eina von! státar af nýjum aðföngum eftir núlifandi konur.
List er okkar eina von! er yfirskrift þriggja ljósmynda sem fanga gjörning Katrínar Ingu Jónsdóttur Hjördísardóttur. Þar kinkar hún kolli til Carolee Schneemann sem framdi gjörning snemma á sjöunda áratugnum sem Erró skrásetti í ljósmyndaseríu á sínum tíma og er varðveitt í safneign Listasafns Reykjavíkur. Verk Katrínar dregur fram áratuga tímabil þrotlausrar baráttu kvenna fyrir því að öðlast pláss á myndlistarsviðinu. Þegar litið er til þess árangurs sem náðst hefur verður sá tími afstæður, bæði er ótrúlegt til þess að hugsa hversu stutt er síðan listsköpun kvenna var jaðarsett og um leið er furðulegt að enn sé nokkuð langt í land að fullu jafnrétti sé náð.
Listasafn Reykjavíkur heldur utan um 17 þúsund færslur í safnskrá sinni og þar hallar verulega á hlut kvenna. Fyrir þessu eru ýmsar skýringar, stofn safneignar í upphafi var að mestu verk karla, safnið varðveitir þrjú yfirgripsmikil einkasöfn karla og innkaup fyrr á tímum voru karllæg. Síðustu ár hefur orðið vitundarvakning, bæði hvað varðar safneignina og sýningadagskrána. Unnið hefur verið markvisst að því að rétta hlut kvenna í sögu og samtíma með átaki í aðföngum, rannsóknum og miðlun.
Sýningin List er okkar eina von! státar af nýjum aðföngum, innkaupum og gjöfum, eftir núlifandi konur. Hér má sjá verk kvenna á öllum aldri, unnin í ýmsa miðla og með tilvísanir í ólík viðfangsefni. Sýnd eru verk úr veglegri gjöf Gjörningaklúbbsins til safnsins, auk verka sem hafa verið keypt á síðustu fimm árum. Auk Gjörningaklúbbsins (Eirún Sigurðardóttir, Jóní Jónsdóttir og Sigrún Hrólfsdóttir) eru verk eftir fjölmargar valinkunnar listakonur þeirra á meðal eru Anna Hallin, Anna Hrund Másdóttir, Arna Óttarsdóttir, Auður Lóa Guðnadóttir, Edda Jónsdóttir, Erla Þórarinsdóttir, Geirþrúður Finnbogadóttir Hjörvar, Hekla Dögg Jónsdóttir, Helena Margrét Jónsdóttir, Helga Páley Friðþjófsdóttir, Hildigunnur Birgisdóttir, Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, Katrín Elvarsdóttir, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir, Kristín Morthens, Margrét H. Blöndal, Olga Bergmann, Sirra Sigrún Sigurðardóttir, Una Björg Magnúsdóttir, Una Margrét Árnadóttir og Þórdís Aðalsteinsdóttir.
Sýningarstjóri er Ólöf Kristín Sigurðardóttir
Sýningarstjóri
Ólöf Kristín Sigurðardóttir
Kynningarmynd
Þórdís Aðalsteinsdóttir, Kapall, 2023
Fjölmiðlaumfjöllun - skrár (pdf)
Fjölmiðlaumfjöllun
Listamenn