Verslun

Hetjur norðurslóða (íslenska)

 

Hetjur norðurslóða er óður til grænlenska sleðahundsins og sambandsins sem myndast hefur milli manns og hunds í veiðimannasamfélaginu á Grænlandi. Ragnar Axelsson hefur ferðast um Grænland í um 40 ár og hefur á þeim árum safnað sögubrotum af harðri lífsbaráttu Grænlendinga í sambýli við besta vin mannsins. Á Grænlandi er hundurinn svo ríkur þáttur í menningu og daglegu lífi að hann nánast rennur saman við samfélagið og náttúruna. Það tók Ragnar nokkur ár að átta sig fyllilega á mikilvægi hundsins í þessu samhengi og þessi bók er liður í að deila þeirri uppgötvun. 

Hetjur norðurslóða hefur að geyma sögur veiðimanna af hundum sínum en án sleðahundsins hefði grænlenskt samfélag sennilega ekki náð að þrífast um aldir. Í bókinni eru mikilfenglegar ljósmyndir af sambýli hunda og manna á tímum loftslags- og samfélagsbreytinga. Elsta myndin er tekin árið 1986 og sú yngsta rétt ársgömul og saman segja þær frá hrikalegum umskiptum í náttúru manna og hunda á Grænlandi. Á síðustu tíu árum hefur hundunum fækkað úr þrjátíu þúsund í ellefu þúsund. Grænlenski sleðahundurinn er hin sanna hetja Norðurslóða. Í bókinni sýnir Ragnar Axelsson okkur hversu stórbrotið þetta dýr er og órjúfanlegt vináttusamband veiðimanna sem eiga allt sitt undir náttúrunni.  

  • Harðspjalda 
  • 290 síður 
  • Myndskreytt (137 tritone myndir) 
  • Tungumál: íslenska 
  • Útgáfuár: 2020 
  • Útgefandi: Qerndu Publishing 
  • Stærð: 24 cm x 34 cm 
  • Þyngd: 2,39 kg

Þér gæti einnig líkað við