Aðgangsmiðar gilda í sólarhring í öll hús safnsins.
Fullorðnir: 2.350 kr.
Námsmenn: 1.450 kr.
Yngri en 18 ára: Frítt
Öryrkjar: Frítt
Árskort: 5.720 kr.
Árskort +1: 8.650 kr.
Árskort 18–28 ára: 3.990 kr.
Hópar 10+: 1.450 kr.
Árskort Listasafns Reykjavíkur veitir frían aðgang að öllum sýningum og viðburðum á vegum safnsins, nema annað sé tekið fram. Árskortið veitir einnig 10% afslátt í safnverslunum Listasafns Reykjavíkur og 5% afslátt á veitingastaðnum á Kjarvalsstöðum. Reglulega er boðið upp á sérleiðsagnir fyrir árskortshafa. Hægt er að kaupa árskort í móttökum safnhúsanna og í vefverslun.
Menningarkort Reykjavíkur veitir aðgang að Listasafni Reykjavíkur og Borgarsögusafni Reykjavíkur ásamt afslætti í Viðeyjarferjuna.
Hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur fæst bókasafnskort gegn framvísun kortsins.
Menningarkortið veitir einnig afslætti og tilboð á fjölmarga viðburði, tónleika, kvikmyndahús og veitingahús.
Menningarkortið gildir í eitt ár í senn.
Almenn verð: 8.130 kr.
Eldri borgarar 67+: 2.350 kr.
Nánari upplýsingar á menningarkort.is
Leiðsögn fyrir hópa
Leiðsögn fyrir hópa á opnunartíma:
Fast gjald fyrir leiðsögn: 25.150 kr. Aðgangseyrir fyrir hvern gest: 2.350 kr.
Ef hópurinn samanstendur af 10 gestum eða fleirum er aðgangseyrir fyrir hvern gest 1.450 kr.
Leiðsögn fyrir hópa utan opnunartíma:
Færri en 30 gestir: 70.500 kr. (aðgangseyrir innifalinn) Fleiri en 30 gestir: 94.600 kr. (aðgangseyrir innifalinn)
Safnið býður skólum og skipulögðu félagsstarfi upp á ókeypis leiðsagnir og safnfræðslu. Bókið hér.