Kjarval snertir mig: ungt fólk kynnist Kjarval

Kjarval snertir mig: ungt fólk kynnist Kjarval

Kjarval snertir mig: ungt fólk kynnist Kjarval

Kjarvalsstaðir

-

Sýningaverkefnið er unnið í samvinnu við Önnu Jóhannsdóttur (Önnu Jóa), myndlistarmann, listgagnrýnanda og kennara í áfanganum Listasaga og listfræði við Kvennaskólann í Reykjavík. Nemendur eru í 3. bekk (18 ára) á hugvísindabraut sem er ný námsleið og mögulega farvegur fyrir upprennandi listfræðinga og safnafræðinga.

Nemendur Kvennó hafa komið í nokkrar vettvangsheimsóknir á Kjarvalsstaði undanfarna mánuði og fengið kynningu á verkum Jóhannesar S. Kjarval, skoðað geymslur safnsins og átt vinnufundi með fræðsludeild, safnadeild og sýningardeild safnsins.

Markmið verkefnisins er að gefa framhaldsskólanemum tækifæri til að velja verk úr safneign og setja fram hugmyndir sínar og tengsl við Kjarval út frá eigin reynsluheimi. Fljótlega í ferlinu kom fram sú hugmynd að nemendur myndu velja sér hlut úr lífi sínu, sem þau gerðu tilraun til að tengja við þau listaverk sem fyrir valinu urðu, og brúa þannig bilið á milli goðsagnarinnar um Kjarval og þeirra eigin veruleika. Nemendur þurftu að rökstyðja val sitt á hlutum og listaverkum í formi texta þannig að sýningagestir geti áttað sig á niðurstöðu hvers og eins í hópnum.

Þátttakendurnir 14 eru: Anna Jóhannesdóttir Einar Helgason Eva Björg Jóhannsdóttir Helga Lára Halldórsdóttir Hjördís Lind Sandholt Hlín Sigríður Bryngeirsdóttir Hólmfríður Hafsteinsdóttir Jenný Jónsdóttir Karólína Klara Geirsdóttir Kristín María Erlendsdóttir Sif Alexandersdóttir Stefán Gunnar Sigurðsson Valdís Jörgensdóttir Þórhildur Sigurðardóttir..

Myndir af sýningu

Ítarefni