Veldu ár

2023 (15)
2022 (16)
2021 (21)
2020 (21)
2019 (27)
2018 (19)
2017 (21)
2016 (18)
2015 (20)
2014 (19)
2013 (17)
2012 (17)
2011 (22)
2010 (26)
2009 (25)
2008 (24)
2007 (26)
2006 (14)
2005 (16)
2004 (24)
2003 (32)
2002 (18)
2001 (20)
2000 (19)
1999 (13)
1998 (11)
1997 (14)
1996 (17)
1995 (17)
1994 (17)
1993 (22)
1992 (27)
1991 (24)
1990 (24)
1989 (25)
1988 (38)
1987 (38)
1986 (26)
1985 (28)
1984 (34)
1983 (28)
1982 (30)
1981 (26)
1980 (27)
1979 (21)
1978 (23)
1977 (21)
1976 (24)
1975 (19)
1974 (11)
1973 (11)
21.12.2012
20.05.2013

Kjarval – Mynd af heild

Nokkur hundruð verk eftir Jóhannes S. Kjarval í eigu Listasafns Reykjavíkur hafa verið dregin fram í dagsljósið á sýningunni "Mynd af heild". Sýningin er í anda salon-sýninga, þar sem verkin þekja alla veggi Kjarvalssalarins, frá gólfi og upp í loft án nokkurrar reglu. Á sýningunni er lögð áhersla á óvænt samhengi verkanna, en þema, tímaskeið, viðfangsefni og tímaröð eru látin lönd og leið. Áhorfandinn nálgast verk Kjarvals án fyrirmæla og skyggnist inn í hugarheim hans á eigin forsendum.

Listasafn Reykjavíkur hefur leitast við að setja safneign Kjarvals fram á ólíkan máta, með þematengdum sýningum, yfirlitssýningum og samsýningum. Kjarvalssafneignin samanstendur af 5.392 verkum eftir listamanninn; 5.159 teikningum, 188 málverkum auk annarra tegunda verka. Kjarvalssafneignin. Kjarval ánafnaði Reykjavíkurborg stóran hluta listaverka sinna og persónulegra muna árið 1968. Hluti gjafarinnar var sýndur í fyrsta sinn við opnun Kjarvalsstaða árið 1973. Safnið hefur vaxið jafnt og þétt með tíð og tíma en bæði hafa verið keypt verk í safnið og því hefur einnig borist fjöldi ómetanlegra gjafa frá einstaklingum.

Kjarval, Jóhannes Sveinsson Kjarval (1885–1972) skipar sérstakan sess í íslenskri menningar- og listasögu sem einn ástsælasti listamaður þjóðarinnar fyrr og síðar. Hann var goðsögn í lifanda lífi og í augum margra persónugervingur hins rómantíska listamanns og bóhems. Rætur hans lágu í hinu íslenska bændasamfélagi en líf hans og listsköpun tengist menningarlegri viðreisn þjóðarinnar á fyrri hluta 20. aldar órjúfandi böndum. Íslendingar hafa gegnum verk hans lært að skoða á nýjan hátt náttúru landsins, fólkið og þann ævintýraheim sem er að finna í landslaginu og í huga þjóðarinnar. Verkum Kjarvals hefur oft verið skipt í þrjá meginflokka: Landslagsmyndir, teikningar og táknræn málverk.

Listamaður/-menn: 
Umfjöllun fjölmiðla pdf: 
PDF icon 28141415.pdf (319.21 KB)
PDF icon 28764107.pdf (4.32 MB)

Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.