Fara beint í efni

Karin Sander 1957-2057

Karin Sander

Karin Sander 1957-2057

Hafnarhús

-

Á sýningunni verður hversdagsleikinn nýr og óvæntur, sjálf verðum við önnur og hluti af höfundarverki Karin Sander.

Karin Sander er vel þekkt þýsk listakona sem býr og starfar í Berlín en hefur á síðustu þrjátíu árum dvalið talsvert á Íslandi og nýtt landið sem viðfang í mörgum verka sinna. Á þessari yfirgripsmiklu sýningu, sem er hluti af Listahátíð í Reykjavík, eru verk sem spanna allan feril listakonunnar og gefa innsýn í verk alþjóðlegs hugmyndalistamanns sem vinnur með umhverfi okkar og tilvist á óvæntan og áhrifamikinn hátt.

Karin er þekkt fyrir að afhjúpa með lágmarksinngripum nýjar hliðar veruleikans. Mörg verka hennar byggja á þátttöku sýningargesta eða áhrifum umhverfisins auk þess sem inngrip hennar í rými safnsins kalla á hugleiðingar um staðinn, tilgang hans og eðli. Á sýningunni Karin Sander 1957-2057 er fjallað um staðarvitund í landfræðilegum, líkamlegum og huglægum skilningi. Sýningargestum er boðið að láta skanna sig og prenta af sér smástyttu; auðir strigar á víðavangi safna áferð við mismunandi aðstæður og neonskilti staðsetur áhorfendur í Hafnarhúsi samkvæmt mælingum GoogleEarth.

Kerlingafjöll, Karin Sander
Karin Sander, strigi 2025
Karin Sander, Reykjavík 2025
Karin Sander í Reykjavík 2025

Á sýningunni eru glæný málverka úr seríunni Veðruð málverk – málverk sem orðið hafa til með því að láta koma ómeðhöndlaðan listmálunarstrigum fyrir á óvæntum stöðum. Strigarnir draga í sig aðstæður umhverfisins yfir lengri tíma. Í stað hefðbundinnar pensilskriftar byggja þessi verk á náttúrulegu ferli veðrunar og verða þannig að sjálfsprottnum náttúrumyndum af stöðunum þar sem þeim var komið fyrir. Verkin urðu til víða um land og endurspegla áhuga listakonunnar á samspili efnis, tíma og staðar. Rammarnir hafa veðrast í öllum landsfjórðungum en á meðan hún dvaldi hérlendis síðastliðið sumar fór Karin um landið og kom fyrir strigum meðal annars í Arnarfirði, Kerlingafjöllum og á norðurhlið Hafnarhússins.

Verk Karin Sander byggja gjarnan á þátttöku sýningargesta og hugmyndum um áhrif tíma og staðar á sjálfsmynd okkar og ásýnd. Eitt umfangsmesta verk sýningarinnar er Sýningargestir 1:8. Það er tæknilega flókið og byggist upp á sýningartímanum með þátttöku gesta. Þrívíddarprent af innskönnuðum sýningargestum mynda áhrifamikinn skúlptúr um leið og verkið verður til fyrir augum gesta.

Karin Sander, strigi 2025
Karin Sander, strigi 2025
Póst­lagt málverk 156, Bonn - Berlin - New York - Reykjavík eftir Karin Sander
Póst­lagt málverk 156, Bonn - Berlin - New York - Reykjavík, 2014

Karin Sander hlaut myndlistarmenntun sína í Dusseldorf og hefur á ferli sínum gengt prófessorsstöðu í myndlist við Kunsthochschule Berlin-Weißensee og í listasögu og hönnun við ETH Zürich í Sviss. Hún var fulltrúi Sviss á Feneyjatvíæringum í arkitektúr 2023 ásamt Philip Ursprung. Karin Sander hefur hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar, m.a. rannsóknarstyrk Whitney safnsins í New York, Rome Prize og Villa Romana. Verk hennar eru hluti af opinberum- og einkasöfnum víða um heim og má í því samhengi nefna að Listasafn Reykjavíkur og Listasafn Íslands varðveita verk eftir hana. Settar hafa verið upp sýningar á verkum hennar á virtum sýningarstöðum víða um heim svo sem Kunstmuseum Winterthur og SFMoma. Karin er höfundur áhugaverðra verka í almannarými einkum í Þýskalandi og Sviss en árið 2018 vann hún samkeppni um útilistaverk í Vogabyggð í Reykjavík.

Sýningin Karin Sander 1957 – 2057 kynnir hugmyndalega nálgun listakonunnar við efni og rými og hvernig hún kemur okkur á óvart með nýstárlegri nálgun sinni við hversdagslega hluti, arkitektúr og stafræna miðla.

Ítarefni

Sýningarstjórar

Markús Þór Andrésson og Ólöf K. Sigurðardóttir

Fjölmiðlar

Samstarfsaðilar

Listamenn