Gjörn­ingur: Kona í e-moll

Kona í e-moll, ljósmynd Vigfús Birgisson

Gjörningur: Kona í e-moll

Hafnarhús

-

Gjörningur eftir Ragnar Kjartansson á sýningunni Guð, hvað mér líður illa.

Í miðjum hring úr gylltum strimlum stendur kona í pallíettukjól eins og lifandi stytta á snúningspalli. Hún er með Fender-rafmagnsgítar um öxl tengdan magnara og þegar hún slær á strengina ómar e-moll hljómur um sýningarsalinn. Hljómurinn er sígild undirstaða dægurtónlistar enda liggur hann fyrirhafnarlítið í grunnstillingu hljóðfærisins.

Hann er angurvær en um leið ágengur, einkum hér þar sem hann er endurtekinn í sífellu án tilbrigða.

Gjörningurinn fór upphaflega fram í samtímalistasafni Detroit-borgar, MOCAD. Þar kallaðist verkið á við þá staðreynd að í borginni spruttu á sínum tíma fram margar afgerandi tónlistarstefnur 20. aldarinnar. 

Gjörningurinn Kona í e-moll er annar gjörningur af þremur á sýningunni og stendur yfir til 3. september 2017. Hann fer fram alla daga á opnunartíma safnsins, frá morgni til kvölds..

Myndir af sýningu

Ítarefni