D25 Berg­lind Jóna Hlyns­dóttir: Class Divider

Berglind Jóna Hlynsdóttir: Class Divider

D25 Berglind Jóna Hlynsdóttir: Class Divider

Hafnarhús

-

Berglind Jóna Hlynsdóttir (f. 1979) hóf feril sinn sem ljósmyndari. Hún lauk BA gráðu frá Listaháskóla Íslands 2006 og MA gráðu frá Valand School of Fine Arts í Svíþjóð árið 2010.

Berglind Jóna hefur starfað sem myndlistamaður á Íslandi, í Svíþjóð og í Brasilíu. Hún hefur unnið að stórum verkefnum í almenningsrýmum og tekið þátt í ótal alþjóðlegum samsýningum og samstarfsverkefnum, en þetta er fyrsta einkasýning hennar í opinberu safni. 

Viðfangsefni hennar eru margvísleg en spyrja gjarnan spurninga er snúa að almenningsrýmum. Í borgarsamfélagi, þar sem umhverfið er manngert og hver staður er hannaður í einhverjum tilgangi, kannar Berglind umhverfið út frá sögu og væntingum sem samfélagið ber til þeirra. Í verkinu Class Divider fjallar Berglind um visst fyrirbæri sem er hannað í þeim tilgangi að aðgreina flugfarþega. Class divider sem þýðir einfaldlega stétt-skipting, vekur upp spurningar um það hvernig við búum til tæki og kerfi til að flokka fólk eftir samfélagstöðu á hinum ýmsu stöðum. 

Af nýlegum sýningum sem Berglind Jóna hefur tekið þátt í má nefna samsýninguna Double Bind sem var sýningastýrt af Rupert stofnuninni í Litháen (2015) og sýnd á þremur stöðum í Litháen og svo bæði í Noregi og á Íslandi (2016), verkið Gangverkið-Endurminningar klukkunnar á Lækjartorgi, sem var sett upp í almenningsrými í Reykjavík (2014).

Á meðal alþjóðlegra sýninga sem hún hefur tekið þátt í eru 4th International Sinope Biennal - Wisdom of Shadow: Art in the Era of Corrupt Information í Tyrklandi (2012). LET ME THINK! sýningastýrt af Laura Mott, 3rd Moscow Biennale, Red October, Moskva (2009). Berglind var valin til að keppa um Hasselblad verðlauninn: Victor Stipendium og tók þátt í tveimur sýningum á þeirra vegum: New Nordic Photography í Hasselblad Center, Gautaborg og Center For Photography, Stokkhólmi (2010). 

Sýningaröðin, sem nefnd er eftir D-sal Hafnarhússins, hófst árið 2007. Þar eru að jafnaði sýnd verk eftir listamenn sem ekki hafa áður haldið einkasýningar í stærri söfnum landsins. Markmið sýningaraðarinnar er að gefa efnilegum listamönnum tækifæri til að vinna innan veggja safnsins og beina athygli gesta að nýjum og áhugaverðum hræringum innan listheimsins. Á árinu 2016 eru áætlaðar alls fimm sýningar í sýningaröðinni, en sýnendur eru Sæmundur Þór Helgason, Berglind Jóna Hlynsdóttir, Arnfinnur Amazeen, Örn Alexander Ámundason og Ingibjörg Sigurjónsdóttir..

Myndir af sýningu

Myndir frá opnun