Ásmundur Sveins­son: Vatns­ber­inn-Fjall+­kona

Ásmundur Sveinsson: Vatnsberinn-Fjall+kona

Ásmundur Sveinsson: Vatnsberinn-Fjall+kona

Ásmundarsafn

-

Á sýningunni er þess minnst að á árinu 2015 eru 100 ár liðin frá því að konur fengu kosningarétt á Íslandi, en það varð með konungsskipun 19. júní 1915. Hin kunna höggmynd Ásmundar Sveinssonar, Vatnsberinn (1937), er þungamiðja og leiðarstef sýningarinnar.

Vatnsberarnir í Reykjavík voru ein lægsta stétt fólks í mannvirðingum á sínum tíma.

Um vatnsburðinn sáu bæði konur og karlar, þó heldur fleiri konur. Þrátt fyrir að starf vatnsberanna væri eitt hið minnst metna og lægst launaðasta í Reykjavík, mun það hafa verið eina starfið þar sem jafnrétti ríkti í launamálum. Ásmundur gerði höggmyndina Vatnsberann til að heiðra minningu vatnsberanna og túlka styrk þeirra og seiglu, við gerð hans hafði hann tröllslega fjallamyndun Íslands í huga.

Sumum Reykvíkingum þótti þó enginn heiður að höggmyndinni og hugmyndir um að staðsetja hana í miðbænum ollu langvinnum deilum á árunum 1948-1955 og ekki örgrannt um að væri pólitík blandið. Var Vatnsberinn meðal annars uppnefndur ófreskja og skrímsli með selshaus og hótað eyðileggingu. Seinna varð Vatnsberinn kyndilmerki á veggspjaldi kvennafrídagsins í Reykjavík 1975, þótti vera táknrænn fyrir sögu kvenna.

Vitnar þetta um breyttan tíðaranda og breytilegt mat á listaverkum en ekki síður um hve stjórnmálamönnum getur orðið hált á því að reyna að stjórna listastefnum og fagurfræðilegu mati.

Það er vel þess virði að rifja þessa sögu upp, auk ljósmynda og sögulegra heimilda um vatnsberana. Á sýningunni verða ásamt Vatnsberanum önnur valin verk Ásmundar, í samtali við verk þeirra Örnu Valsdóttur, Daníels Magnússonar, Kristínar Gunnlaugsdóttur, Níelsar Hafsteins, Ólafar Nordal, Ragnhildar Stefánsdóttur og Sigurðar Guðmundssonar. Nýlókórinn mun einnig flytja gjörning á opnun undir stjórn Snorra Birgis Sigfússonar. Sýningin stendur til 19. apríl 2015..

Myndir af sýningu