Ásmundur Sveins­son: Undir sama himni

Ásmundur Sveinsson: Undir sama himni

Ásmundur Sveinsson: Undir sama himni

Ásmundarsafn

-

Sýning á verkum Ásmundar Sveinssonar (1893-1982). Verkin á sýningunni eru bæði frummyndir verka sem standa úti í almannarými eða verk sem tengjast þeim. Ásmundur lærði höggmyndalist í Danmörku og Svíþjóð og var ætíð umhugað um að almenningur fengi notið lista. Verk Ásmundar er að finna um allt land og má meðal annars nefna Andlit sólar sem stendur fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík, Vatnsberann við Lækjargötu en ekki síst fjölda útiverka sem standa umhverfis Ásmundarsafn í höggmyndagarðinum við Sigtún.

Ásmundur Sveinsson ólst upp í sveit í Dölunum og hóf námsferil sinn sem listamaður hjá Ríkarði Jónssyni myndskera 22 ára gamall. Þá fór hann til Danmerkur í listnám og þaðan til Svíþjóðar og að lokum til Parísar í Frakklandi. Ásmundur er einn af frumkvöðlunum í íslenskri höggmyndalist. Eftir að Ásmundur fluttist heim reisti hann m.a. tvær byggingar þar sem hann bjó og var með vinnustofu sína.

Listasafn Reykjavíkur starfrækir safn um verk hans í einni þeirra, Ásmundarsafni í Laugardal. Ásmundur sótti innblástur í íslenskar sagnir og þjóðtrú og í form náttúrunnar. Síðar urðu ýmsar tækninýjungar 20. aldar honum hugleiknar. Ásmundur var afkastamikill listamaður. Verkum hans hefur verið komið fyrir á opinberum stöðum víða um land og er það í anda hugmynda hans um að listin eigi ekki að vera fyrir fáa útvalda heldur hluti af daglegu lífi allrar alþýðu. Ásmundur Sveinsson lést árið 1982, 89 ára gamall..

Myndir af sýningu

Listaverk

Myndir frá opnun

Ítarefni

Sýningarskrá

Sýningarstjóri/-ar

Yean Fee Quay, Sigurður Trausti Traustason

Listamenn

Boðskort