Ásmundur Sveins­son: List fyrir fólkið

Ásmundur Sveinsson, Höfuðlausn, 1948, eik, 66x45 cm.

Ásmundur Sveinsson: List fyrir fólkið

Ásmundarsafn

-

Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara.

Á sýningunni er sjónum beint að öllum ferli listamannsins allt frá tréskurðarnámi hjá Ríkarði Jónssyni og til síðustu ára listamannsins. Sýnd eru verk unnin í ýmis efni þar á meðal verk höggvin úr tré, steinsteypu og brons. Á sýningunni eru jafnframt frummyndir þekktra verka sem stækkuð hafa verkið og sett upp víða um land.

Hönnuður sýningarinnar er Finnur Arnar Arnarson og er framsetning verkanna með þeim hætti að í einstakri umgjörð Ásmundarsafns fá þau nýtt og kröftugt samhengi. 

Við sama tækifæri kemur út vegleg bók sem varpar ljósi á feril Ásmundar og stöðu hans í íslenskri listasögu út frá ólíkum sjónarhornum. Bókin er ríkulega myndskreytt en í henni eru jafnframt greinar sem varpar ljósi á feril Ásmundar og stöðu hans í íslenskri listasögu út frá ólíkum sjónarhornum. Hann lifði gríðarlegar breytingar á íslensku samfélagi 20. aldarinnar og var einn af þeim sem kynntu þjóðina fyrir nýjum straumum í myndlist aldarinnar. Megin grein bókarinnar er eftir Kristínu G.

Guðnadóttur listfræðing og fjallar hún um list Ásmundar, samtíma hans og helstu áhrifavalda. Höfundar annarra greina eru Eiríkur Þorláksson, listfræðingur, Pétur H. Ármannsson, arkitekt og Hjálmar Sveinsson, heimspekingur. Hönnuður bókarinnar er Ármann Agnarsson.

Ásmundur Sveinsson fæddist að Kolstöðum í Dölum 20. maí 1893. Hann var á meðal frumkvöðla íslenskrar höggmyndalistar og einn þeirra sem kynntu fyrir Íslendingum nýjar hugmyndir í myndlist 20. aldar. Ásmundur sótti innblástur í íslenskar sagnir og þjóðtrú en samfélagið og tækniframfarir 20. aldar voru honum einnig ríkuleg uppspretta hugmynda. Verk Ásmundar eru á opinberum stöðum víða um land og setja svip sinn á Reykjavík. Það er í anda þeirrar afstöðu Ásmundar að listin eigi að vera úti á meðal fólksins og hluti af daglegu lífi. Hann lést árið 1982 en Ásmundarsafn við Sigtún var opnað almenningi árið 1983 og er nú hluti af Listsafni Reykjavíkur. 

Síðar á sýningartímabilinu er bætt við sýningarborðum með verkum Ásmundar Sveinssonar (1893-1982) þar sem innblástur Carls Milles (1875-1955), lærimeistara Ásmundar á námsárunum í Svíþjóð, skín í gegn. Milles var einn merkasti myndhöggvari Svía en áhrif hans má greina í mörgum verka Ásmundar. 

Verk Milles hverfast um mannslíkamann og birta gjarnan goðsagnaverur í samspili við dýr, svo sem hesta eða sjávardýr, og er Milles sérstaklega þekktur fyrir gosbrunna og laugar þar sem vatn flæddi um skúlptúrana. Ásmundur vann þó nokkur verk og skissur sem gerðu ráð fyrir tjörn og gosbrunni og sýndu manneskjur samofnar fiskum og öðrum sjávardýrum..

Myndir af sýningu

Myndir frá opnun

Ítarefni

Sýningarskrá

Sýningarstjóri/-ar

Ólöf Kristín Sigurðardóttir

Umfjöllun fjölmiðla

Listamenn

Boðskort