Fara beint í efni

Magnús Pálsson

Í minn­ingu Njáls­brennu

Í minningu Njálsbrennu / Magnús Pálsson

Hæð:

260 cm

Flokkur:

Innsetning

Ár:

1978

Í minningu Njálsbrennu er eitt af verkum Magnúsar þar sem hann vinnur skopleg tilbrigði við hugmyndina um minnismerki. Verkið samanstendur af tíu ritvélum á stöplum, arfa sem hangir úr hverri ritvél og bílnúmeraplötunni L-1010 sem stendur á stöpli fyrir framan ritvélarnar. L-ið stendur fyrir Rangárvallasýslu og 1010 fyrir ártal brennunnar; ritvélarnar eru jafnmargar og þeir sem brunnu inni samkvæmt sögunni. Arfinn vísar til þess að í sögunni segir að notaður hafi verið arfi til að tendra eldinn. Í minningu Njálsbrennu er gott dæmi um bókmenntalega konseptlist, ekki aðeins vegna þess að verkið fjallar um bókmenntalegt efni, heldur einnig vegna þess að uppbygging verksins og innri merkingartengsl eru bókmenntalegs eðlis.

Fleiri verk eftir Magnús Pálsson

Einsemd
Magnús Pálsson
Einsemd / Skúlptúr
Skoða
Minning Þórarins Nefjólfssonar
Magnús Pálsson
Minning Þórarins Nefjólfssonar / Skúlptúr
Skoða
Óður til bílsins
Magnús Pálsson
Óður til bílsins / Innsetning
Skoða
Kúplingsdiskur
Magnús Pálsson
Kúplingsdiskur / Fjöltækni
Skoða
Eye Talk II
Magnús Pálsson
Eye Talk II / Fjöltækni
Skoða
Augntal
Magnús Pálsson
Augntal / Fjöltækni
Skoða
The Offs. Play in two acts
Magnús Pálsson
The Offs. Play in two acts / Bóklist
Skoða
Eye Talk
Magnús Pálsson
Eye Talk / Fjöltækni
Skoða
Sjá öll verk (14)