Friðarsúlan

Friðarsúlan í Viðey er hugarfóstur listarmannsins og friðarsinnans Yoko Ono og er hugsuð sem leiðarljós fyrir heimsfrið.
Verkið er í formi „óskabrunns“ en á hann eru orðin „Hugsa sér frið“ grafin á 24 tungumálum. Upp úr brunninum stígur ljóssúla sem er saman sett úr fimmtán geislum sem sameinast í einu sterku ljósi. Sex ljósgeislanna fara lárétt um göng á palli í kringum brunninn og er endurkastað upp með speglum. Pallurinn er þakinn þrenns konar íslensku grjóti – líparíti, grágrýti og blágrýti. Þessi hönnun er táknræn tjáning Yoko Ono á leiðbeiningarverki sem hún gerði árið 1965 og nefnist Ljóshús.
"Ljóshúsið er tálsýn, byggt úr tæru ljósi. Sláðu upp strendingum á ákveðnum tíma dags, við ákveðna kvöldbirtu sem streymir gegnum strendingana, og ljóshúsið birtist í miðju vallarins eins og táknmynd, nema hvað þessi táknmynd býður þér inngöngu ef þú vilt. Svo kann að fara að ljóshúsið birtist ekki daglega, alveg eins og sólin skín ekki daglega".

Þann 9. október 2007 var listaverkið fyrst opinberað og tileinkað minningu Johns Lennon sem hefði þá orðið 67 ára.
Á hverju ári lýsir friðarsúlan frá 9. október (fæðingardegi Lennons) til 8. desember (dánardags hans). Hún lýsir einnig 18. febrúar, á afmælisdegi Yoko Ono. Að auki logar ljósið frá vetrarsólstöðum til nýársdags og eina viku að vori.
"Hugsa sér allt fólkið lifa lífinu í friði.“ – John Lennon
„Draumur sem mann dreymir einn er aðeins draumur. Draumur sem okkur dreymir saman er raunveruleiki.“ – Yoko Ono
„Ég vona að friðarsúlan muni lýsa upp heitar óskir um heimsfrið hvaðanæva úr veröldinni og veita hvatningu, innblástur og samstöðu í heimi þar sem nú ríkir ótti og ringulreið. Sameinumst um að gera friðsæla veröld að veruleika.“ – Yoko Ono