Fara beint í efni

Óskatré Yoko Ono

Óskatré Yoko Ono

Óskatré er þátttökuverk á milli Yoko Ono og áhorfenda.

Þátttakendum er boðið að skrifa óskir sínar á merkimiða og hengja á trén.

Hugmyndin að verkinu er byggð á minningu hennar úr æsku þar sem hún, ásamt fleirum, skrifaði niður óskir og hengdi á tré fyrir utan hof í Japan, en í fjarska virtust trén vera í blóma vegna óskamiðanna. Verkið hefur verið sett upp í menningarmiðstöðvum og söfnum um allan heim og eru óskirnar orðnar yfir milljón talsins. Í lok sýningartímans er óskunum safnað saman, þær settar í stafrænt form og þeim komið fyrir undir Friðarsúlunni í Viðey í Reykjavík. Friðarsúlan er verk eftir Yoko Ono frá árinu 2007 og tileinkað eiginmanni hennar heitnum, John Lennon. Verkið er í formi óskabrunns, en upp úr honum stígur há og mikil ljóssúla og má ímynda sér að óskirnar sem eru undir honum fari með ljósgeislanum út í alheiminn. Óskatré eru sett upp í Reykjavík þegar kveikt er á súlunni, 9. október – 8. desember á hverju ári. Yoko Ono fæddist árið 1933 í Tokyo og flutti til New York borgar árið 1953, þar sem hún býr og starfar í dag. Hún lærði tónlist og ljóðlist í Sarah Lawrence College. Á sjöunda áratugnum varð hún kunn í samhengi við þróun flúxus– og konseptlistar, þar sem hún setti fram áhrifaríka gjörninga og hugmyndaverk.

Wish Tree from 1996 by Yoko Ono