Vetr­arfrí grunn­skól­anna 2025

Í vetrarfríi grunnskólanna býður Listasafn Reykjavíkur upp á skemmtilega dagskrá fyrir börn á grunnskólaaldri.

Allt fríið verða leikir og þrautir í boði í móttökum safnanna sem börn geta leyst með hjálp fullorðinna í sýningarsölum. Frítt inn fyrir fullorðna í fylgd með börnum.

Mánudaginn 24. febrúar kl. 13.00 –15.00 á Kjarvalsstöðum

Búum til bókverk!

Í þessari smiðju sækja þátttakendur innblástur í sýninguna Ólgu og búa til eigið bókverk. Bókverk er listaverk sem er hægt að fletta eins og bók og getur verið blanda af myndum og texta. Í smiðjunni er lögð áhersla á skemmtilega og skapandi nálgun og hugað að því að höfða til þarfa og áhuga hvers og eins.

Leiðbeinandi: Maríanna Eva Dúfa Sævarsdóttir, myndlistarmaður og kennari.

Þriðjudaginn 25. febrúar kl 13.00–15.00 í Ásmundarsafni

Á bakvið tjöldin – Leirsmiðja

Ásmundur Sveinsson myndhöggvari hafði næmt auga fyrir fólkinu í landinu og gerði fjölda höggmynda af vinnandi fólki. Í þessari leirsmiðju veltum við fyrir okkur ólíkum hlutverkum í samfélaginu og mótum í leir. Í smiðjunni er lögð áhersla á skemmtilega og skapandi nálgun og hugað að því að höfða til þarfa og áhuga hvers og eins.

Leiðbeinandi: Anton Logi Ólafsson, myndlistarmaður og kennari.

Hlökkum til að sjá ykkur í vetrarfríinu!

Búum til bókverk

Mánudaginn 24. febrúar á Kjarvalsstöðum.
Sjá meira

Fólkið á bakvið tjöldin - leirsmiðja

Þrijudaginn 25. febrúar í Ásmundarsafni
Sjá meira