Vinnu­stofu­lok: Útgáfa bókverks

30. mars 2025, 14:00 til 16:00

Vinnustofulok: Útgáfa bókverks

Vinnustofulok: Útgáfa bókverks

Ásmundarsafn

30. mars 2025, 14:00 til 16:00

Vinnustofudvöl Unnars lýkur um helgina með útgáfu bókverks í Ásmundarsafni.

Unnar Örn Jónasson Auðarsson hefur verið með vinnustofu í Undralandi Ásmundar Sveinssonar síðan í janúar. Unnar Örn sækir innblástur í hvers konar skrásetningu sögunnar og hefur síðustu vikur rannsakað einstakt sérsafn - Ásbúðarsafn sem varðveitt er í Þjóminjasafni Íslands og mun nú gefa út bókverk byggt á vinnu sinni við safnið. Hægt verður að kaupa bókverkið á sérstöku útgáfuhófsverði í Ásmundarsafni.

Undraland er verkefni tileinkað sögu Ásmundarsafns. Þar var heimili og vinnustofa Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara (1893-1982) sem hann hannaði sjálfur og byggði á árunum 1942-1950. Lóðin var í túnfæti bæjar sem hét Undraland. Ásmundur ánafnaði Reykjavíkurborg húsið og verk sín eftir sinn dag og var þar stofnað safn helgað minningu hans árið 1983. Þá fjóra áratugi sem listamaðurinn starfaði í húsinu var það vettvangur frjórrar listsköpunar. Yfir allt árið 2025 er listamönnum boðin aðstaða í húsinu til þess að vinna að eigin verkum í vinnslu eða hvers konar ferli.

Unnar Örn Jónasson Auðarson er fæddur árið 1974 í Reykjavík. Hann útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1999 og lauk meistaranámi við Listaháskólann í Malmö 2003. Síðasta einkasýning Unnars Arnar var í Glerhúsinu undir lok ársins 2024 og kallaðist Óminnissafnið.