Fara beint í efni

Vinnu­stofa í mynda­sögu­gerð fyrir 12-16 ára börn

til

Vinnustofa í myndasögugerð fyrir 12-16 ára börn

Vinnustofa í myndasögugerð fyrir 12-16 ára börn

Kjarvalsstaðir

til

Íslenska Myndasögusamfélagið býður upp á vikulanga vinnustofu fyrir krakka í myndasögugerð í samstarfi við Rannís og Listasafn Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum.

Námskeiðið, sem er ætlað börnum 12-16 ára, er frítt en hámarksfjöldi þátttakenda er 20. Í boði verður kennsla í myndasögugerð - allt frá hugmyndagerð til textaskrifa sem leiða til fullkláraðrar myndasögu. Vinnustofan er hugsuð sem hluti af Kríukeppninni, sem er keppni barna og unglinga í myndasögugerð sem stendur yfir til 28. Ágúst.