Fara beint í efni

VETR­ARFRÍ | Legóvél­menni – smiðja í vetr­ar­fríi á Lista­safni Reykja­víkur.

til

VETRARFRÍ | Legóvélmenni – smiðja í vetrarfríi á Listasafni Reykjavíkur.

VETRARFRÍ | Legóvélmenni – smiðja í vetrarfríi á Listasafni Reykjavíkur.

Hafnarhús

til

Komdu og kubbaðu vélmenni í Hafnarhúsi í vetrarfríinu! Fimmtudagur 19. febrúar kl 13-15. Hafnarhúsi, Tryggvagötu 17.

Á sýningunni Hraunmyndunum ímyndum við okkur framtíð þar sem Íslendingar hafa beislað hraunið beint úr iðrum jarðar með aðstoð vélmenna. Í smiðjunni verður unnið með Lego Spike sett frá Mixtúru, sköpunar- og tækniveri skóla- og frístundasviðs. Þátttakendur vinna saman að því að hanna, byggja og forrita ótrúlega flott vélmenni.

Listasafn Reykjavíkur býður upp á spennandi og skapandi dagskrá fyrir börn í vetrarfríi grunnskólanna. Þar fá ungir gestir tækifæri til að leika sér, læra og skapa í lifandi og hvetjandi umhverfi safnsins.

Allt fríið verða leikir og þrautir í boði í móttökum safnanna sem börn geta leyst með hjálp fullorðinna í sýningarsölum.

Frítt inn fyrir fullorðna í fylgd með börnum.