Fara beint í efni

Vetr­arfrí á safninu

til

Vetrarfrí á safninu

Vetrarfrí á safninu

Hafnarhús

til

Listasafn Reykjavíkur býður upp á spennandi og skapandi dagskrá fyrir börn í vetrarfríi grunnskólanna. Þar fá ungir gestir tækifæri til að leika sér, læra og skapa í lifandi og hvetjandi umhverfi safnsins.

Dagskrá Vetrarfrís á Listasafni Reykjavíkur

Fullorðnir fá frítt inn á söfnin í fylgd barna.

HAFNARHÚS
Opið alla daga 10.00-17.00 og til kl. 22.00 á fimmtudögum.

Fimmtudagur 19. febrúar kl. 13.00-15.00
Legóvélmenni – smiðja
Við kubbum vélmenni innblásin af sýningunni Hraunmyndanir í Hafnarhúsi þar sem hugmyndaflug og tækni koma saman á skapandi hátt. Þátttakendur vinna saman að því að hanna, byggja og forrita ótrúlega flott vélmenni. Smiðjan er opin fyrir skapandi börn á öllum aldri.

Föstudagur 20. febrúar kl. 13.00-15.00
Blómstrandi framtíð – smiðja
Í smiðjunni sækjum við innblástur í verk Katrínar Elvarsdóttur og búum til okkar eigin blómamyndir. Skemmtileg og aðgengileg smiðja sem hentar öllum aldri – og auðvelt er að endurtaka heima.

Listasafnsbingó, safnaðu listaverkum og fáðu afhent bingóspjald í móttökunni.

KJARVALSSTAÐIR
Opið daglega 10.00-17.00

Á Kjarvalsstöðum getur þú tekið þátt í ratleik um sýninguna Kjarval og 20. öldin: Þegar nútíminn lagði að. Getur þú fundið öll verkin?

ÁSMUNDARSAFN
Opið daglega 13.00-17.00

Taktu þátt í listasafnsbingói um sýninguna Undraland og ratleik um Ásmundargarð. Listamaðurinn Finnur Arnar hefur hreiðrað um sig á safninu og er að mála verk í loft kúlunnar. Komdu í heimsókn og hittu listamanninn sem býr á safninu! Í Ásmundarsafni er einnig leyniskúffa fyrir fjölskyldur þar sem má finna ýmislegt skemmtilegt til að skapa og leika með.

Komdu á safnið í vetrarfríinu og prófaðu eitthvað nýtt! Allt fríið verða leikir og þrautir í boði í móttökum safnanna sem börnin geta leyst með hjálp fullorðinna.

Frítt inn fyrir fullorðna í fylgd með börnum allt vetrarfríið.