Fara beint í efni

Verð­launa­af­hending Íslenska mynda­sögu­fé­lagsins

til

Verðlaunaafhending Íslenska myndasögufélagsins

Verðlaunaafhending Íslenska myndasögufélagsins

Kjarvalsstaðir

til

ÍMS býður gesti velkomna á fyrstu verðlaunaafhendinguna sem á sér stað á Kjarvalsstöðum á laugardaginn 24. október milli kl. 13:00-14:00. Verk sigurvegara verða til sýnis og léttar veigar verða í boði.

Í sumar hélt Íslenska myndasögusamfélagið fyrstu barna- og unglingakeppni sína í myndasögugerð á landsvísu, en keppnin þekkist betur undir nafninu „Kríukeppnin.“

Alls bárust ÍMS 51 innsending, þar af 37 í barnaflokki og 14 í unglingaflokki. Dómnefnd hefur lokið matsferli sínu og mun formlega tilkynna sigurvegara í hvorum flokki.