Uppspretta 2026 – Markaðstorg viðburða og hugmynda fyrir skóla- og frístundastarf
til

Uppspretta 2026 – Markaðstorg viðburða og hugmynda fyrir skóla- og frístundastarf
Hafnarhús
til
Kennurum og starfsfólki leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva er boðið á Uppsprettu – lifandi vettvang þar sem fjölmargar stofnanir kynna spennandi viðburði, fræðslu, tól og vettvangsferðir sem styðja við skapandi og lifandi skóla- og frístundastarf.
Á dagskrá er kynning á fjölbreyttum tilboðum frá eftirfarandi aðilum auk örkynninga stofnanna:
Alþingi, Árnastofnun, Borgarbókasafn Reykjavíkur, Borgarleikhúsið, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Fjölskyldu og húsdýragarðurinn, Grasagarður Reykjavíkur, Hönnunarsafn Íslands, Jafnréttisskólinn, List fyrir alla, Listasafn Einars Jónssonar, Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur, Miðja máls og læsis, Miðstöð útivistar og útináms, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Mixtúra sköpunar og upplýsingaver, Nýsköpunarmiðja menntamála, RÚV, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Þjóðleikhúsið, Þjóðminjasafn Íslands.
Léttar veitingar og almenn gleði í boði.
Hittumst á Uppsprettu, eflum tengslanetið og fyllumst innblæstri fyrir skólaárið framundan – aðgangur ókeypis og öll velkomin!