Umræðu­þræðir | Sara Nadal-­Melsió - Evrópa og úlfur­inn: póli­tísk tilbrigði við mynd­gerv­ingu úr tónlist

til

Umræðuþræðir |  Sara Nadal-Melsió - Evrópa og úlfurinn: pólitísk tilbrigði við myndgervingu úr tónlist

Umræðuþræðir | Sara Nadal-Melsió - Evrópa og úlfurinn: pólitísk tilbrigði við myndgervingu úr tónlist

Hafnarhús

til

Sara Nadal-Melsió er katalónskur rithöfundur, sýningarstjóri og kennari sem starfar á mörkum samvinnuhugsunar, annars konar læsis, og sameiginlegra námsaðferða.

Í fyrirlestrinum Evrópa og úlfurinn skoðar Nadal-Melsió hvernig verk nokkurra samtímalistamanna varpa ljósi á þá kreppu sem altæk evrópsk gildi standa frammi fyrir í ljósi harðneskjulegs veruleika útilokunar og eftirlits með landamærum. Titillinn vísar til „úlfsins“, hugtaks úr barokktónlist sem lýsir ósamhljómi sem verður til þegar reynt er að stilla eða stilla saman hljóðfæri. Evrópa og úlfurinn nýtir þessa tónlistarlegu myndgervingu til að fjalla um fagurfræði verka sem hugsa um félagslegar og pólitískar mótsagnir í samtímanum. Evrópa er sett fram sem huglægt vandamál sem lítur á samræmingu sem skipulagsreglu á meðan „úlfurinn“ stendur fyrir ósamræmi og birtist í útlendingnum, innflytjandanum eða flóttamanninum. Orðið „úlfur“ vísar í latneska máltækiðð „maður er manni úlfur“ sem vekur upp gegnsýrðan ótta, og jafnvel hatur á því sem er framandi, ókunnugt, eða utan landamæra samfélagsins. Fyrirlesturinn fylgir „úlfinum“ í gegnum tengingar milli tónlistar, myndlistar og stjórnmál og nýstárlegar túlkanir á verkum eftir listamenn á borð við Carlos Santos, Pere Portabella, Allora&Calzadilla, og Anri Sala. Í verkunum birtast óstöðugar táknrænar og efnislegar samsetningar sem opna fjölbreytta pólitíska möguleika og ómöguleika – sem ögra stofnunum sem þola illa óvissu og líta með tortryggni á fjölbreytileika. Sara Nadal-Melsíó hefur kennt við Pennsylvaníu háskóla, Princeton háskóla, New York háskóla, SOMA í Mexíkóborg og Birkbeck, hugvísindastofnunina, auk þess að kenna við Einaldea í Barselóna. Hún hefur einnig verið aðstoðaryfirmaður Whitney Independent Study Program. Skrif hennar hafa birst í akademískum tímaritum, ritstýrðum greinasöfnum og sýningarskrám safna. Nýjustu bækur hennar eru Politically Red (MIT, 2023), sem hún skrifaði með Eduardo Cadava og Europe and the Wolf: Political Variations on a Musical Figure (Zone Books, 2025).