Tölum saman | Hafnarhús
til

Tölum saman | Hafnarhús
Hafnarhús
til
Í tilefni af verkefninu Samtal býður Listasafn Reykjavíkur ungu fólki á aldrinum 18–30 ára frítt inn á sýningar í Hafnarhúsi, laugardaginn 10 október.
Listin getur opnað á ný sjónarhorn, vakið spurningar og skapað rými fyrir samtal. Við hvetjum ungt fólk til að líta við í Hafnarhúsi, skoða sýningarnar, staldra við og deila upplifun og hugmyndum með öðrum.
Samtal er verkefni sem býður fólki um allt land að koma saman, hlusta hvert á annað og ræða vonir, gildi og hugmyndir um framtíðina. Ungt fólk er þar í lykilhlutverki og leiðir samtalið milli kynslóða.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, er hvatamaður og verndari verkefnisins.