Tendrun Friðarsúlunnar í Viðey
til

Tendrun Friðarsúlunnar í Viðey
Viðey
til
Kveikt verður á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey í tuttugasta sinn, föstudaginn 9. október klukkan 20. Frítt er í Viðeyjarferjuna og fríar strætóferðir frá Ráðhúsi Reykjavíkur.Skráning er nauðsynleg á viðburðinn, sjá hlekk!
Við hvetjum gesti til að taka þátt í hátíðlegri kvöldstund í Viðey þar sem Friðarsúlan verður tendruð í tuttugasta sinn. Boðið verður upp á leiðsagnir, listasmiðju, tónlistarflutning og hátíðardagskrá við Friðarsúluna.
Dagskrá
Leiðsagnir og listasmiðja Upphafsstaður allra leiðsagna er við Viðeyjarstofu og listasmiðjan er í Nausti. 17:30 Listasmiðja á vegum Listasafns Reykjavíkur fram að tendruninni. 17:45 Leiðsögn á vegum Listasafns Reykjavíkur um verk Richard Serra og Yoko Ono.
18:00 Söguganga á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur
18:45 Leiðsögn á vegum Listasafns Reykjavíkur um verk Richard Serra og Yoko Ono.
19:00 Söguganga á vegum Borgarsögusafns Reykjavíkur.
Dagskrá við Friðarsúluna
19:45 Árný Margrét flytur tónlist við Friðarsúluna
19:58 Hildur Björnsdóttir borgarstjóri flytur ávarp
20:00 Friðarsúlan tendruð við lagið Imagine eftir John Lennon og Yoko Ono
Samgöngur Siglingar frá Skarfabakka - Viðey Kl. 17.30 – 19.30 Frítt er í ferjuna, en skráning í báta nauðsynleg hjá Eldingu 20:30–22:00
Strætó Ráðhús að Skarfabakka (30 mín fresti) Kl. 17.30 – 19.00 Strætó frá Skarfabakka að Ráðhúsinu (á 30 mínútna fresti) 20:30–21:30
Viðeyjarstofa verður opin frá kl. 17:30–21:00, eða þar til síðasti gestur hefur yfirgefið eyjuna. Þar verður hægt að kaupa léttar veitingar.
Um Friðarsúluna
Friðarsúlan í Viðey er hugarfóstur listarmannsins og friðarsinnans Yoko Ono og er hugsuð sem leiðarljós fyrir heimsfrið.
Verkið er í formi „óskabrunns“ en á hann eru orðin „Hugsa sér frið“ grafin á 24 tungumálum. Upp úr brunninum stígur ljóssúla sem er saman sett úr fimmtán geislum sem sameinast í einu sterku ljósi. Sex ljósgeislanna fara lárétt um göng á palli í kringum brunninn og er endurkastað upp með speglum. Pallurinn er þakinn þrenns konar íslensku grjóti – líparíti, grágrýti og blágrýti.