Fara beint í efni

Sýning­aropnun │ Finnur Arnar: Dómur

til

Sýningaropnun  │ Finnur Arnar: Dómur

Sýningaropnun │ Finnur Arnar: Dómur

Ásmundarsafn

til

Verið öll velkomin á sýningaropnun í Ásmundarsafni, laugardag 7. mars kl. 15.00. Finnur Arnar lýkur vinnustofudvöl sinni í Ásmundarsafni með opnun á sýningunni Dómur sem mun standa yfir til 22. mars.

Finnur Arnar hefur unnið að verkinu frá því í janúar á þessu ári, en hann flutti á safnið, vann að verkinu og tók á móti gestum og gangandi.

Yfir allt árið 2025 hefur listamönnum verið boðin aðstaða í húsinu til þess að vinna að eigin verkum í vinnslu eða hvers konar ferli og í byrjun árs 2026 reið Finnur Arnar á vaðið sem sjötti listamaðurinn með verk í vinnslu í Ásmundarsafn.

Finnur Arnar Arnarson vinnur oftar en ekki með samband manns og umhverfis í verkum sínum. Hugmyndum sínum finnur hann form í margskonar miðlum, s.s. skúlptúr, innsetningum og ljósmyndum.