Fara beint í efni

Swimslow x Lista­safn Reykja­víkur: BlómaJóga

til

Swimslow x Listasafn Reykjavíkur: BlómaJóga

Swimslow x Listasafn Reykjavíkur: BlómaJóga

Hafnarhús

til

Listasafn Reykjavíkur og íslenska vellíðunarmerkið Swimslow bjóða gestum í nærandi morgunstund í Hafnarhúsi laugardaginn 7. mars kl. 09.00.

Upplifunin fer fram í sýningu Katrínar Elvarsdóttur, Blómstrandi framtíð og felur í sér blómahugleiðslu, róandi öndun og djúpslökun.

Á sýningunni beinir Katrín sjónum sínum að plöntum sem hafa ferðast milli heimkynna. Í þessu ljóðræna rými fá þátttakendur tækifæri til að hægja á sér, tengjast skynfærunum og leyfa líkama og huga að kyrrast.

Verð: 4.900 kr. Innifalið er 50mín jóga og aðgöngumiði í Hafnarhús, Kjarvalsstaði og Ásmundarsafn í sólarhring. 10% afsláttur fyrir árskorthafa Listasafns Reykjavíkur.

Hámark 20 þátttakendur, skráning er nauðsynleg. Jógadýnur á staðnum.