Sunnudagsleiðsögn sýningarstjóra | Hrafnkell Sigurðsson
til

Sunnudagsleiðsögn sýningarstjóra | Hrafnkell Sigurðsson
Kjarvalsstaðir
til
Björk Hrafnsdóttir sýningarstjóri leiðir gesti um sýningu Hrafnkels Sigurðssonar X, Kjarvalsstöðum sunnudaginn 22. nóvember kl. 14.00.
Hrafnkell er tíundi listamaðurinn sem valinn er til þátttöku í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum, þar sem farið er yfir feril lykilpersóna í íslensku listalífi.
Sýningin veitir yfirlit yfir rúmlega þrjátíu ára feril listamannsins ásamt því að sýna ný og áður óséð verk.
Verk Hrafnkels draga gjarnan fram andstæður eins og á milli skipulags og óreiðu, menningar og náttúru. Listamaðurinn beinir sjónum að því hvernig mannleg kerfi takast á við náttúrulegt niðurbrot og dregur fram fegurðina í því sem við lítum oft framhjá, til dæmis rusli, sjúskuðu yfirborði og öðru í hverfulleika daglegs lífs.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa og fyrir yngri en 18 ára.