Fara beint í efni

Sunnu­dags­leið­sögn og smiðja fyrir börn og fjöl­skyldur | Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd

til

Sunnudagsleiðsögn og smiðja fyrir börn og fjölskyldur | Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd

Sunnudagsleiðsögn og smiðja fyrir börn og fjölskyldur | Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd

Kjarvalsstaðir

til

Sunnudagsleiðsögn og smiðja fyrir börn og fjölskyldur um sýninguna Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd á Kjarvalsstöðum. Sunnudaginn 20. september kl. 14.00.

Að leiðsögn lokinni verður haldið í barna- og fjölskyldusmiðjuna Hvamm, þar sem gestum gefst kostur á að skapa saman, leika sér með hugmyndir og eiga notalega stund í góðum félagsskap.

Í tilefni 240 ára afmælis Reykjavíkur árið 2026 er ásýnd borgarinnar í gegnum tíðina tekin til skoðunar á sumarsýningu á Kjarvalsstöðum.

Við kynnum ný samtímalistaverk, drögum fram áhugaverð listaverk úr safneign og fáum að láni forvitnilega muni frá öðrum söfnum og stofnunum. Þar sjáum við borgina þróast frá kaupstað og sjávarþorpi til fjölþjóðlegrar menningar- og ferðamannaborgar í lifandi, brotakenndri og síbreytilegri mynd. Sýningin kallar fram spurningar um ímynd, borgarskipulag, samfélagsgerð og menningarlega sjálfsmynd. Hinu áþreifanlega er stillt upp samhliða hinu ljóðræna, hinu sögulega og hinu listræna, hinu persónulega og hinu sammannlega.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.