Fara beint í efni

Sunnu­dags­leið­sögn með Jóni Gnarr | Smáborg, háborg - Reykjavík í mynd

til

Sunnudagsleiðsögn með Jóni Gnarr | Smáborg, háborg - Reykjavík í mynd

Sunnudagsleiðsögn með Jóni Gnarr | Smáborg, háborg - Reykjavík í mynd

Kjarvalsstaðir

til

Jón Gnarr leiðir gesti um sýninguna Smáborg, háborg - Reykjavík í mynd á Kjarvalsstöðum, sunnudag 4. október klukkan 14.00.

Jón Gnarr er stofnandi og formaður Besta flokksins 2009-2010 og var Borgarstjóri Reykjavíkur 2010–2014.

Í tilefni 240 ára afmælis Reykjavíkur árið 2026 er ásýnd borgarinnar í gegnum tíðina tekin til skoðunar á sumarsýningu á Kjarvalsstöðum.

Við kynnum ný samtímalistaverk, drögum fram áhugaverð listaverk úr safneign og fáum að láni forvitnilega muni frá öðrum söfnum og stofnunum. Þar sjáum við borgina þróast frá kaupstað og sjávarþorpi til fjölþjóðlegrar menningar- og ferðamannaborgar í lifandi, brotakenndri og síbreytilegri mynd. Sýningin kallar fram spurningar um ímynd, borgarskipulag, samfélagsgerð og menningarlega sjálfsmynd. Hinu áþreifanlega er stillt upp samhliða hinu ljóðræna, hinu sögulega og hinu listræna, hinu persónulega og hinu sammannlega.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.