Sunnudagsleiðsögn með Ingibjörgu Sólrúnu | Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd
til

Sunnudagsleiðsögn með Ingibjörgu Sólrúnu | Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd
Kjarvalsstaðir
til
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir leiðir gesti um sýninguna Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd á Kjarvalsstöðum, sunnudag 16. ágúst, kl. 14.00.
Ingibjörg Sólrún var borgarfulltrúi 1982-1988 og 1994-2006 og borgarstjóri Reykjavíkurborgar frá árinu 1994-2003.
Í tilefni 240 ára afmælis Reykjavíkur árið 2026 er ásýnd borgarinnar í gegnum tíðina tekin til skoðunar á sumarsýningu á Kjarvalsstöðum.
Við kynnum ný samtímalistaverk, drögum fram áhugaverð listaverk úr safneign og fáum að láni forvitnilega muni frá öðrum söfnum og stofnunum. Þar sjáum við borgina þróast frá kaupstað og sjávarþorpi til fjölþjóðlegrar menningar- og ferðamannaborgar í lifandi, brotakenndri og síbreytilegri mynd. Sýningin kallar fram spurningar um ímynd, borgarskipulag, samfélagsgerð og menningarlega sjálfsmynd. Hinu áþreifanlega er stillt upp samhliða hinu ljóðræna, hinu sögulega og hinu listræna, hinu persónulega og hinu sammannlega.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.