Sunnudagsleiðsögn með Degi B. Eggertssyni | Smáborg, háborg - Reykjavík í mynd
til

Sunnudagsleiðsögn með Degi B. Eggertssyni | Smáborg, háborg - Reykjavík í mynd
Kjarvalsstaðir
til
Dagur B. Eggertsson leiðir gesti um sýninguna Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd á Kjarvalsstöðum, sunnudag 6. september kl. 14.00.
Dagur var kosinn í borgarstjórn Reykjavíkur fyrir Reykjavíkurlista í maí 2002 og var formaður skipulagsráðs 2004–2006. Oddviti borgarstjórnarflokks Samfylkingarinnar 2006–2025. Borgarstjóri október 2007 – janúar 2008. Formaður borgarráðs 2010–2014. Borgarstjóri júní 2014 – 16. janúar 2024. Formaður borgarráðs 16. janúar 2024 – janúar 2025.
Í tilefni 240 ára afmælis Reykjavíkur árið 2026 er ásýnd borgarinnar í gegnum tíðina tekin til skoðunar á sumarsýningu á Kjarvalsstöðum.
Við kynnum ný samtímalistaverk, drögum fram áhugaverð listaverk úr safneign og fáum að láni forvitnilega muni frá öðrum söfnum og stofnunum. Þar sjáum við borgina þróast frá kaupstað og sjávarþorpi til fjölþjóðlegrar menningar- og ferðamannaborgar í lifandi, brotakenndri og síbreytilegri mynd. Sýningin kallar fram spurningar um ímynd, borgarskipulag, samfélagsgerð og menningarlega sjálfsmynd. Hinu áþreifanlega er stillt upp samhliða hinu ljóðræna, hinu sögulega og hinu listræna, hinu persónulega og hinu sammannlega.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.