Fara beint í efni

Sunnu­dags­leið­sögn | Kjarval og 20. öldin: Þegar nútíminn lagði að

til

Sunnudagsleiðsögn | Kjarval og 20. öldin: Þegar nútíminn lagði að

Sunnudagsleiðsögn | Kjarval og 20. öldin: Þegar nútíminn lagði að

Kjarvalsstaðir

til

Linda Salbjörg Guðmundsdóttir safnafræðingur leiðir gesti um sýninguna Kjarval og 20. öldin: Þegar nútíminn lagði að, Kjarvalsstöðum fyrsta sunnudag í aðventu 29. nóvember kl. 14.00.

Á sýningunni getur að líta myndlistarverk íslenskra listamanna frá um sex áratuga skeiði eftir aldamótin 1900.

Verkin spanna það tímabil sem listmálarinn Jóhannes S. Kjarval var starfandi. Þegar litið er á feril Kjarvals og hann speglaður í verkum samtíðarmanna hans sést hvernig myndlistin tekur breytingum og þróast. Tíðarandi sem var ríkjandi hverju sinni endurspeglast í ólíkum stílbrigðum og verkin gefa innsýn inn í hugðarefni höfunda, umhverfi þeirra og aðstæður. Framan af ríkti rómantísk náttúrusýn en fljótlega kom táknsæi til sögunnar og fyrstu skrefin voru stigin í þá átt að brjóta upp natúralískt myndmál.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa og fyrir yngri en 18 ára.