Fara beint í efni

Sumar­nám­skeið í Viðey – VIÐEY FRIÐEY

til

Sumarnámskeið í Viðey – VIÐEY FRIÐEY

Sumarnámskeið í Viðey – VIÐEY FRIÐEY

Viðey

til

VIÐEY FRIÐEY er spennandi vikunámskeið fyrir 8-9 ára börn (fædd 2017 og 2018) sem fer fram í júní í hinni friðsælu náttúruperlu Viðey.Námskeiðið er unnið í samstarfi Listasafns Reykjavíkur og Borgarsögusafns

Börnin nema land, upplifa sögu og náttúru eyjarinnar í gegnum skapandi og listrænt starf innan- og utandyra. Þau fá að kynnast gamla skólahúsinu í Viðey sem var hluti af þorpinu sem hvarf. Í skólahúsinu er sérlega góð aðstaða til tilrauna og rannsókna á gersemum náttúru eyjunnar sem verða notaðar sem efniviður í myndlistarsköpun og leiki. Börnin fá einnig að kynnast umhverfislistaverkum Richards Serra og Yoko Ono í návígi og skapa sín eigin verk í náttúrunni. Unnið verður sérstaklega með friðarupplifun í gegnum listir, leiki, markvissa útiveru og hreyfingu.

Markmið námskeiðsins er að hver og einn þátttakandi fái að njóta sín á eigin forsendum undir handleiðslu fagfólks. Leitast verður við að skapa vingjarnlegt umhverfi fyrir börnin án snjalltækja, þar sem þau munu njóta sín í hópi jafningja.

Kennarar á námskeiðinu er þau Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson og Perla Hafþórsdóttir. Fjöldi barna er takmarkaður á námskeiðinu, að lágmarki 12 börn og að hámarki 15 börn.

Þrjú námskeið eru í boði og er hvert þeirra fjórir dagar:

námskeið – 15. 06-19. 06 (mið. 17. júní er frídagur)
námskeið – 22.06 – 25.06
námskeið – 29.06 – 02.07

Verð: 37.000 kr.

Skráning fer fram á Abler, nánari upplýsingar síðar.