Sjónlýsing | Lekir líkamar, sameiginlegir heimar
til

Sjónlýsing | Lekir líkamar, sameiginlegir heimar
Hafnarhús
til
Halla Margrét Jóhannesdóttir verður með sjónlýsingu fyrir blinda og sjónskerta um sýninguna Lekir líkamar, sameiginlegir heimar, í Hafnarhúsi, fimmtudag 15. október kl. 18.00.
Sjónlýsingin fer fram á degi hvíta stafsins, alþjóðlegum baráttu- og vitundardegi blindra og sjónskertra, sem er haldinn 15. október ár hvert. Tilgangur dagsins er að vekja athygli á hvíta stafnum og hagsmunamálefnum blindra og sjónskertra einstaklinga.
Lekir líkamar, sameiginlegir heimar er sýning á verkum þrjátíu pólskra samtímalistamanna úr safneign Bunkier Sztuki í Kraká. Á sýningunni eru ljósmyndir, málverk, skúlptúra og innsetningar sem fjalla um líkamann, sjálfsmynd, tengsl og samfélag.
Verkin voru flest unnin á 21. öld og endurspegla hvernig líf okkar mótast af umhverfi, tækni og samskiptum við aðra. Sýningin varpar ljósi á fjölbreytileika pólskrar samtímalistar og skapar vettvang fyrir samtal milli pólskrar menningar og íslensks samfélags.
Leiðsöguhundar velkomnir.
Frítt er á viðburðinn.