Fara beint í efni

Samtal um sýningu | Guðrún Kristjáns­dóttir: Leiðir

til

Samtal um sýningu | Guðrún Kristjánsdóttir: Leiðir

Samtal um sýningu | Guðrún Kristjánsdóttir: Leiðir

Kjarvalsstaðir

til

Fríða Björk Ingvarsdóttir, fyrrverandi rektor Listaháskóla Íslands og Sunna Ástþórsdóttir, sýningarstjóri ræða sýningu Guðrúnar Kristjánsdóttur Leiðir á Kjarvalsstöðum.

Í samtali Fríðu og Sunnu er farið yfir verk Guðrúnar Kristjánsdóttur á sýningunni og þau sett í samhengi við feril hennar og ólíkar leiðir í listsköpun. Formið verður opið og lifandi og gestum boðið að taka virkan þátt í umræðunni, umvafðir verkum sem spanna fjóra áratugi.

Guðrún hefur skapað sér sérstöðu í íslenskri myndlist með verkum sem skoða samband náttúru og manns, mótað af birtu á Íslandi. Hún nálgast náttúruna sem lifandi afl, þar sem kyrrð og kraftur mætast og óvænt fegurð birtist í hógværum augnablikum.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.