Fara beint í efni

Samtal um Hraun­mynd­arnir

til

Samtal um Hraunmyndarnir

Samtal um Hraunmyndarnir

Hafnarhús

til

Samtal um sýninguna Hraunmyndanir, sunnudag 12.apríl kl. 14.00–15.00, Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús.

Listasafn Reykjavíkur efnir til samtals um verkefnið Hraunmyndanir, framlag íslands til 19. alþjóðlega Feneyjartvíæringsins í arkitektúr 2025 og birtingarmyndir hrauns í bæði myndlist og arkitektúr á Íslandi. Sýningin Hraunmyndanir (e. Lavaforming) er til sýnis í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi til 26. apríl 2026.

Þátttakendur í samtalinu eru fólkið á bakvið verkefnið sjálft og sýninguna í Listasafni Reykjavíkur: s.ap arkitektar; Arnhildur Pálmadóttir, Arnar Skarphéðinsson og Björg Skarphéðinsdóttir, Andri Snær Magnason, rithöfundur og Halldór Ásgeirsson, myndlistarmaður. Markús Þór Andrésson, safnstjóri, leiðir samtalið.

Hraunmyndanir er framtíðarsýn í arkitektúr þar sem glóandi hraun er notað sem byggingarefni fyrir mannvirki og heilar borgir. Sýningin segir sögu framtíðarsamfélags sem hefur lært að temja hraunflæði, nýta sér það og þannig breytt staðbundinni ógn í tækifæri til sköpunar.

s. ap arkitektar er ung en reynslumikil arkitektastofa sem starfar á mörkum hönnunar, tækni og vísinda. Verkefni stofunnar eru bæði hefðbundin arkitekta- og hönnunar verkefni en einnig tilraunakennd rannsóknarverkefni þar sem farið er framhjá núverandi kerfum og horft til tækni framtíðarinnar með það að markmiði að þróa nýjar aðferðir tengdar mannvirkjagerð og sporna við áhrifum hennar á loftslagsbreytingar.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.