Fara beint í efni

Samtal lista­manns og sýning­ar­stjóra | Katrín Elvars­dóttir: Blómstrandi framtíð

til

Samtal listamanns og sýningarstjóra | Katrín Elvarsdóttir: Blómstrandi framtíð

Samtal listamanns og sýningarstjóra | Katrín Elvarsdóttir: Blómstrandi framtíð

Hafnarhús

til

Katrín Elvarsdóttir og Bryndís Erla Hjálmarsdóttir sýningarstjóri eiga samtal um sýninguna Blómstrandi framtíð í Hafnarhúsi, fimmtudaginn 19. mars kl. 20.00.

Á sýningunni Blómstrandi framtíð beinir Katrín sjónum sínum að plöntum sem hafa ferðast milli heimkynna. Í verkunum mætast grípandi fegurð og hugleiðingar um uppruna. Hún veltir fyrir sér hvað það þýðir að tilheyra, að festa rætur – vera aðfluttur og samt hluti af heild.

Fjórar seríur sýningarinnar fjalla um inngrip mannsins í náttúruna: Plöntur eru fluttar á milli staða sem gjafir, sem eign, fyrir forvitnissakir eða í nafni rannsókna og framþróunar. Í forgrunni eru fjórar tegundir; kirsuberjatré, bananatré, fenjagreni og kínversk plastblóm, sem hver um sig býr yfir langri og áhugaverðri sögu sem tengir saman ólíkar heimsálfur.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorts- og Menningarkorthafa, frítt fyrir yngri en 18 ára.

Gestir eru beðnir að skrá sig á viðburðinn: https://forms.office.com/e/kpnAitZHuh